Úr ferð um Nevada og Kaliforníu

Þegar eyðimerkur Nevada og austurhluta Kaliforníu eru bornar saman við eyðimerkur Íslands er einn munur sérstaklega sláandi, hvað þær fyrrnefndu eru miklu betur grónar. Gróðurinn er að vísu þyrrkingslegur en hann er nokkuð samfelldur. Mest áberandi eru runnar af körfublómaætt sem kallast á ensku rabbitbrush og sagebrush, en þeir fyrrnefndu voru blómstrandi gulum blómum þegar íslenskt skógræktarfólk fór um þessar eyðimerkur í lok september.

Pinus monophylla
Pinus monophylla

Meiri áhuga vakti þó furutegundin Pinus monophylla, sem víða myndaði gisna skóga í fjöllunum. Furur bera nálar sínar í knippum, sem eru í raun dvergsprotar á greinunum svipað og á lerki. Furuættkvíslinni er skipt í tvennt á grundvelli þess og er gjarnan talað um tveggja nála furur (t.d. stafafura) og fimm nála furur (t.d. lindifura) eftir því hversu margar nálar eru í hverju knippi. Ekki fylgja þó allar furur þessari meginreglu. Sumar tveggja nála furur eru með þrjár eða jafnvel fjórar nálar í knippi og til eru fimm nála furur sem eru með færri en fimm.

Pinyon-skógur
Pinyon-skógur

Ein þeirra er aðeins með eina nál í knippi og því vart hægt að tala um knippi. Það er þessi sem vex í eyðimerkurfjöllum Nevada og Kaliforníu og kallast á ensku single-leaf pinyon.

Pinyon-skógarnir eru mjög heillandi. Vegna þurra loftslagsins eru þeir náttúrlega gisnir og auðvelt að ganga um þá. Trén eru oftast aðeins 2-5 metrar á hæð, kræklótt en oftast einstofna með breiða krónu. Þetta eru skógar „bonsai-trjáa“. Fræ þessarar furu eru mjög stór og voru áður mikilvæg fæðuuppspretta frumbyggja á svæðinu.

Silver City í Nevada
Silver City í Nevada

Nú eru það einkum nokkrar tegundir fugla og íkorna sem njóta þeirra. Fyrir vikið eru skógarnir mjög líflegir þrátt fyrir eyðimerkurloftslagið.

Ekki þykir fyrir fram líklegt að einnar nálar fura geti þrifist á Íslandi. Í Hvítufjöllum Kaliforníu vex hún þó í tæplega 3.000 m hæð og þar aðeins ofar vex broddfura, sem þrífst á Íslandi. Meira um hana í öðrum pistli.

Texti og myndir: Þröstur Eysteinsson
Myndband: Hlynur Gauti Sigurðsson