Pinus uncinata

Hæð: Fremur smávaxið tré, gæti náð allt að 15 m hérlendis

Vaxtarlag: Oftast marggreinótt tré með breiða krónu, tvær nálar í knippi

Vaxtarhraði: Hægur

Landshluti: Víða um land,  ekki á snjóþungum svæðum

Sérkröfur: Ljóselsk tegund, nýtur sín best ef hvert tré fær gott rými

Styrkleikar: Mjög vindþolið, gott frost- og seltuþol

Veikleikar:  Hægur vöxtur, næmi fyrir sveppsjúkdómnum furubikar eða furugremi  (Gremmeniella abietina)

Athugasemdir: Bergfuru ætti einkum að nota sem landgræðslutegund á sandsvæðum og sem garðtré. Mikil viðkvæmni fyrir furubikar útilokar tegundina frá notkun í almennri skógrækt nema sem frumherja eða fóstru fyrir aðrar tegundir.