Lat. Pineus pini

Lífsferill

Furulús (Pineus pini) situr á berki trjáa og myndar um sig ljósa vaxullarhnoðra. Hún tímgast með kynlausri æxlun. Afkvæmin klekjast úr eggi á vorin. Að klaki loknu skríða þau út á nýju sprotana.

Tjón

Furulús er skæðust á skógarfuru, fjallafuru og bergfuru. Hún fer ekki á lindifuru og broddfuru. Lúsin myndar hvíta ullarhnoðra á berki trjáa. Tré sem verða undirlögð af lús veslast yfirleitt upp og drepast.

Varnir gegn skaðvaldi

Erfitt er að verjast furulús með hefðbundnum eiturefnum. Helst er að reyna að kæfa dýrin með því að úða á trén þar til gerðum lífrænum olíum.