IMG_3956_b

Ráðstefnan var haldin á Reykjanesi við Djúp dagana 23. til 25. mars.

Ráðstefnan er árleg og hefð er fyrir því að hún flakkar réttsælis um landið og er alltaf haldin á nýjum stað. Að þessu sinni verður hún í Reykjanesi við Ísafjarðardjúp. Skipuleggjendur eru:

  • Skjólskógar á Vestfjörðum: Sæmundur Kr. Þorvaldsson.
  • Rannsóknastöð skógræktar á Mógilsá og Skógfræðingafélag Íslands: Aðalsteinn Sigurgeirsson.
  • Skógræktarfélag Íslands: Einar Gunnarsson
  • Landbúnaðarháskóli Íslands: Bjarni D. Sigurðsson.

Ráðstefnan hefst með því, að ráðstefnugögn verða afhent kl. 17:00 til 19:00 miðvikudaginn 23. mars. Við náðum góðum samningi við hótelið, svo verð á mat og gistingu er afar hagstætt. Því hvetjum við alla, sem vettlingi geta valdið, til að mæta strax á umræddum tíma á miðvikudeginum, ef þeir eiga heimangengt og nota kvöldið til að rækta tengslin við annað skógarfólk. Reiddur verður fram kvöldverður kl. 19:00 á miðvikudagskvöldið. Dagskrá ráðstefnunnar hefst kl. 9:00 á fimmtudeginum, þannig að eigi menn ekki um þeim mun skemmri veg að sækja, kemur sér vel að geta mætt strax kvöldið áður.

Skráning

Skráning á ráðstefnuna fer fram hjá Sæmundi Kr. Þorvaldssyni til 15. mars í tölvupósti (skjolskogar[hjá]skjolskogar.is) eða í síma (456-8201).  Við skráningu þarf að taka fram hvaða kosti menn velja í gistingu og munu ráðstefnuhaldarar ganga frá pöntun við hótelhaldara í Reykjanesi. Greiða þarf gistingu og mat á staðnum.

Erindi

Skipulagsnefnd óskar jafnframt eftir erindum (15+5 mín) og veggspjöldum á fagfundinn á föstudeginum. Áhugasamir sendi tillögur (á netfangið skjolskogar[hjá]skjolskogar.is eða til annarra fulltrúa í skipulagsnefnd) fyrir 25. febrúar nk. Viðkomandi verða látnir vita fyrir 5. mars hvort þeir fá úthlutað erindi eða veggspjaldi.

Kostnaður:

Ráðstefnugjald: 8.000 kr.
Gisting og matur: 23.000 kr.

Innifalið í ráðstefnugjaldi eru ráðstefnugögn, skoðunarferð, ofl. Innifalið í gjaldi fyrir gistingu og mat er: Gisting í tvær nætur í tveggja manna herbergi á Reykjanesi, tveir kvöldverðir, þ.a. einn hátíðarkvöldverður, tveir hádegisverðir og morgunmatur á fimmtudags- og föstudagsmorgni. Kjósi menn að vera einir í herbergi er verðið fyrir gistingu og mat 28.000 kr.

Ráðstefnuhaldarar innheimta bæði gjöldin og eiga menn að snúa sér til Sæmundar Kr. Þorvaldssonar hjá Skjólskógum varðandi uppgjör, annað hvort á miðvikudagskvöld á milli kl. 17:00 og 19:00 á Reykjanesi, eða með því að hringja í hann í síma 456-8201 eða senda honum tölvupóst. Þess má geta, að bankareikningur ráðstefnunnar er: 1128-26-2000 og kennitalan er sú sama og kennitala Skjólskóga: 630200-3770. Best væri að menn greiddu beint inná þennan reikning umrædd gjöld og létu síðan vita.

Dagskrá

Fagráðstefnan stendur í tvo heila daga, 24. - 25. mars með mætingu í Reykjanes við Djúp kvöldið áður (23. mars). Að venju skiptist hún í þemadag (24. mars) og almennan fagfund (25. mars). Að þessu sinni fjallar þemadagurinn um „Strauma og stefnur í ræktun sitkagrenis eða birkis í fjölnytjaskógrækt – með áherslu á viðarnytjar“ og munu nokkrir valinkunnir sérfræðingar fjalla um þau mál frá ólíkum hliðum.

Miðvikudagur 23. mars , Reykjanes við Djúp

17:00 - 19:00 Skráning og afhending ráðstefnugagna  
19:00 - 20:30 Kvöldverður og hópsöngur  
20:30 - 24:00 Ýmsir aukafundir og spjall:
-
Aðalfundur Skógfræðingafélagsins
 

Fimmtudagur 24. mars, þemadagur

Þema: Sitkagreni
Fundarstjóri: Valgerður Jónsdóttir  
09:00 - 09:15 Hlutur sitkagrenis í skógum Íslands – stutt yfirlit
Arnór Snorrason og Björn Traustason
Fyrirlestur
09:15 - 09:30
Sitkagreni og kvæmaval; hér, þar og allsstaðar
Aðalsteinn Sigurgeirsson
Ágrip
Fyrirlestur
09:30 - 10:00 Sitkagreni - framtíðartré íslenskra skóga?
Þorbergur Hjalti Jónsson og Björn Traustason
Ágrip
Fyrirlestur
10:00 - 10:30 Kaffihressing
 
10:30 - 11:00 Kvæmatilraun með sitkagreni og hvítsitkagreni á Vestfjörðum
Sæmundur Kr. Þorvaldsson
Ágrip
Fyrirlestur
11:00 - 11:30 Hvernig umhirðu er verið að skipuleggja fyrir sitkagreni í driftsplönum SR?
Lárus Heiðarsson
Ágrip
Fyrirlestur
11:30 - 12:00 Áhrif skógræktaraðgerða á timburgæði – dæmi sitkagreni
Arnlín Óladóttir
Fyrirlestur
12:00 - 13:
30
Hádegisverður
 
Þema: Birki

Fundarstjóri: Björn B. Jónsson

 
13:30 - 13:50 Endurkortlagning birkiskóga og samanburður við eldri kortlagningu
Björn Traustason
Ágrip
Fyrirlestur
13:50 - 14:10

Helstu stærðir náttúrulegra birkiskóga
Arnór Snorrason

Fyrirlestur
14:10 - 14:40 Nytjaskógrækt með birki – er það hægt?
Þröstur Eysteinsson
Ágrip
Fyrirlestur
14:40 - 15:00

Leiðir til aukinnar útbreiðslu birkiskóga á Íslandi
Jón Geir Pétursson

Ágrip
15:00 - 15:30 Pallborð
Samantekt fundarstjóra og almennar umræður
 
15:30 - 16:00 Kaffihressing  
16:00 - 19:00 Skoðunarferð í Laugarbólsskóg í Ísafirði - rútur í boði  
19:30 - 00:00 Hátíðarkvöldverður og skemmtidagskrá  

Föstudagur, 25. mars, almennur fagfundur

  Fundarstjóri : Ólöf I. Sigurbjartsdóttir  
09:00 - 09:20 SkógarKol – hvað er það?
Brynhildur Bjarnadóttir
Ágrip
Fyrirlestur
09:20 - 09:40 Samanburður á svepprótarmyndun skógarfuru og birkis ræktuðum í mismunandi jarðvegi.
Edda S. Oddsdóttir
Ágrip
Fyrirlestur
09:40 - 10:00 Hagræn áhrif landshlutaverkefna í skógrækt, kynning á MS verkefni.
Lilja Magnúsdóttir.
Ágrip
Fyrirlestur
10:00 - 10:30 Kaffihressing  
10:30 - 10:50
Tegundavalsforrit á netinu.
Þorbergur Hjalti Jónsson og Þröstur Blöndal.
Ágrip
10:50 - 11:10 Viðhorfskönnun skógarbænda á Norðurlandi.
Valgerður Jónsdóttir
Ágrip
Fyrirlestur
11:10 - 11:30 Samanburður á vexti sitkagrenis og rauðgrenis.
Valdimar Reynisson
Ágrip
Fyrirlestur
11:30 - 11:50 Kastaníuskógurinn í Belasita fjöllum Búlgaríu.
Sævar Hreiðarsson og Ólafur Eggertsson
Ágrip
Fyrirlestur
11:50 - 12:00 
Akurræktun jólatrjáa.
Björn B. Jónsson
Fyrirlestur
12:00 - 13:00 Hádegisverður  
  Fundarstjóri: Sigvaldi Ásgeirsson  
13:00 - 13:20 Lerki girðingastaurar úr grisjunarvið, efni og aðferðir.
Bergsveinn Þórsson
Ágrip
Fyrirlestur
13:20 - 13:40 Má nota örtungl til að rekja smitleiðir og þróun asparryðs.

Sigríður Erla Elefsen, Halldór Sverrisson og Jón Hallsteinsson

Ágrip
Fyrirlestur
13:40 - 14:00  Mæling á timbri í stæðum, ný aðferð.
Hreinn Óskarsson
Ágrip
Fyrirlestur
14:00 - 14:30 Pallborð  
14:30    Ráðstefnuslit