Lat. Phacidium balsamicola

Lífsferill

Þináta (Phacidium balsamicola) er átusjúkdómur sem hefur drepið einstök tré, flest lítil, á undanförnum árum. Þó eru dæmi um að stór tré hafi drepist einnig. Barr verður dökkrautt á trjám þar sem átan hefur náð að eyðileggja börk á greinum eða stofni. Auðvelt er að sjá hvar börkurinn er skemmdur því þar er hann innfallinn og brúnn. Vorfrost geta einnig verið orsök þess að barr verður rautt en þá er börkurinn eðlilegur.

Tjón

Hérlendis má ætla að sveppurinn finnist víðast hvar þar sem þinur er ræktaður. Yfirleitt skemmast aðeins stök tré.

Varnir gegn skaðvaldi

Einu tiltæku varnaraðgerðirnar eru að fella sýkt tré.