Útgáfa skýrslna um liðið ár hefur verið fastur liður í starfi Skógræktarinnar allt frá stofnun 1908. Framan af fólst skýrslugerðin í því að skógarverðir skrifuðu skýrslur um starfsemina, hver í sínu umdæmi. Árið 2004 hóf Skógrækt ríkisins sem þá hét að gefa út Ársskýrslu sem fékk heitið Ársrit á 100 ára afmælinu 2008. Hélt sú útgáfa áfram eftir sameiningu Skógræktar ríkisins við Landshlutaverkefni í skógrækt 2016. Landshlutaverkefnin gáfu einnig út eigin skýrslur meðan þau störfuðu. Allt þetta efni er að finna hér að neðan.

Ársskýrsluvefur

Frá og með 2019 er Ársrit Skógræktarinnar gefið út á sérstökum ársskýrsluvef. Prentaðri útgáfu Ársritsins var hætt árið 2018 í samræmi við þá stefnu Skógræktarinnar að draga sem mest úr pappírsnotkun, flutningum og öðrum umhverfisáhrifum starfseminnar. Ársskýrsluvefnum er jafnframt ætlað að gera þetta efni aðgengilegra fleirum og víðar en mögulegt er með prentuðu riti.

Tilgangur útgáfunnar

Ársriti Skógræktarinnar er einkum ætlað tvenns konar hlutverk. Annars vegar er að tíunda fyrir samtímanum helstu þætti í starfsemi stofnunarinnar á hverjum tíma en hins vegar að skrásetja sögu stofnunarinnar fyrir framtíðina. Farið er yfir liðið ár í stórum dráttum, tíundaðir merkisviðburðir, ástand skóga landsins á viðkomandi ári og fleira. Einnig er birtur rekstrarreikningur stofnunarinnar og helstu tölur um gróðursetningu og þess háttar.

 

Forsíða Ársrits 2021

2021

Ársrit Skógræktarinnar

Ársritið er gefið út á rafrænu formi en prenta má út hverja grein á pdf-formi

2020

Ársrit Skógræktarinnar

Ársritið kemur eingöngu út í rafrænni útgáfu en hægt er að prenta út efni þess á pdf-formi

2019

Ársrit Skógræktarinnar

Frá og með þessu ári er Ársritið gefið út rafrænt á sérstökum ársskýrsluvef.

Forsíða Ársrits 2018

2018

Ársrit Skógræktarinnar (3,6 MB)

Einnig má skoða Ársritið 2018 á Yumpu-útgáfuvefnum þar sem hægt er að fletta því eins og prentuðu efni:

 

2017

Ársrit Skógræktarinnar (7,4 MB)

 

Forsíða Ársrits 2016

2016

Ársrit Skógræktarinnar (9,2 MB)

 

2015

Ársrit Skógræktar ríkisins (3,7 MB)

 

2014

Ársrit Skógræktar ríkisins (4,3 MB)

 

Forsíða Ársrits 2013

2013

Ársrit Skógræktar ríkisins (4,6 MB)

 

Forsíða Ársrits 2012

2012

Ársrit Skógræktar ríkisins (4,4 MB)

 

Forsíða Ársrits 2011

2011

Ársrit Skógræktar ríkisins (5,4 MB)

 

Forsíða Ársrits 2010

2010

Ársrit Skógræktar ríkisins (6,4 MB) 

 

Forsíða Ársrits 2009

2009

Ársrit Skógræktar ríkisins (5,6 MB)

 

Forsíða Ársrits 2008

2008

Ársrit Skógræktar ríkisins (6,8 MB)

 

Forsíða Ársrits 2007

2007

Ársskýrsla Skógræktar ríkisins (4,2 MB)

 

Forsíða Ársrits 2006

2006

Ársskýrsla Skógræktar ríkisins (5,3 MB)

 

Forsíða Ársrits 2005

2005

Ársskýrsla Skógræktar ríkisins (4,1 MB)

 

Forsíða Ársrits 2004

2004

Ársskýrsla Skógræktar ríkisins (7,8 MB)