Gildandi taxtar hjá Skógræktinni fyrir verk unnin á lögbýlum með skógræktarsamning.

Hér eru birtir taxtar sem eigendum eða umsjónarfólki lögbýla með skógræktarsamning er greitt eftir fyrir unnin verk svo sem gróðursetningu og ýmsa vinnu sem tengist henni, flutning á plöntum og umhirðu, fyrstu grisjun eða millibilsjöfnun og fleira. Taxtarnir eru settir upp í töflu og einnig fylgja skýringar í tíu liðum.

Bent er á ítarlegri fróðleik sem er að finna hér á valmyndinni til hægri, t.d. fræðslubæklinga um skógrækt.