Eftir að hafa verið skóglaust land í mörg hundruð ár er Ísland aftur farið að gefa auðlind í formi viðar. En skóglausið gerir að verkum að landið er enn að mestu land án skógarmenningar.

Björn Steinar tekst ásamt fjölda hæfileikaríkra hönnuða á við vandamálið í samsýningu á Hönnunarmars 2018.

Á meðan búast má við umtalsverðri aukningu skógarnytja á komandi árum hefur nýsköpun ekki farið vaxandi samhliða skógrækt. Um 80% grisjunarviðar úr skógum landsins eru seld sem viðarkurl til kísilmálmvinnslu.

Í ljósi þess að auka má margvíslega aðra notkun viðarins var fjölda hönnuða boðin þátttaka í samsýningu þar sem Björn Steinar framleiðir frumgerðir eftir innsendum tillögum – sem unnar eru með hliðsjón af kortlagningu skógarauðlindarinnar. Hér eru tekin skref í átt að bættum úrvinnsluiðnaði og efldri skógrækt með sýningu á frumgerðum húsganga/nytjahluta.