Skógræktin auglýsir eftir umsóknum um styrki til kolefnisbindingar með skógrækt á vegum félaga og félagasamtaka. Verkefnið kallast Vorviður og er hluti aðgerðaráætlunar stjórnvalda í loftslagsmálum. Umsóknarfrestur um styrki fyrir árið 2021 er til 15. janúar.

Áhugafólk við gróðursetningu. Ljósmynd: Pétur HalldórssonSem hluti af aðgerðaráætlun ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum er Skógræktinni falið að efla tengsl við og styðja félagasamtök með sérstöku verkefni. Verkefnið Vorviður er hluti og bættrar landnýtingar í þágu loftslags í aðgerðaráætluninni

Markmið og forsendur

Markmið verkefnisins er að efla samstarf Skógræktarinnar og ýmissa félaga um allt land í því augnamiði að gefa félögum kost á að binda kolefni með eigin skógrækt. Félög sem nota land sem þegar er á skipulögðu skógræktarlandi njóta forgangs. Plönturnar skulu vera ræktaðar í ræktunarstöð og það telst vera kostur ef hún er í heimahéraði. Ekki er um að ræða styrk vegna eigin plöntuframleiðslu.

Stuðningurinn felst í endurgreiðslu kostnaðar við plöntukaup eingöngu. Félög sækja um styrkinn til Skógræktarinnar sem annast umsýslu þessa verkefnis. Sækja þarf um fyrir hvert ár eins og vinnureglur kveða á um. Um hvert verkefni er gerður samningur við Skógræktina.

Umsóknarfrestur fyrir verkefni árið 2021 er til 15. janúar 2021.

Sæmundur Kr. Þorvaldsson skógræktarráðgjafi er verkefnisstjóri Vorviðar.

Nánari upplýsingar um verkefnið er að finna á vef þess, skogur.is/vorvidur.

Umsóknareyðublað

Texti: Pétur Halldórsson