Timbrið úr Haukadal komið í stæðu og bíður þess að verða brúargólf í Almannagjá. Ljósmynd frá Þjóðga…
Timbrið úr Haukadal komið í stæðu og bíður þess að verða brúargólf í Almannagjá. Ljósmynd frá Þjóðgarðinum á Þingvöllum

Unnið er að endurbótum á efsta hluta göngustígsins frá útsýnispallinum á Hakinu á Þingvöllum og niður í Almannagjá. Viðargólf göngubrúarinnar verður endurnýjað með sitkagreni úr Haukadal sem unnið var í sögunarmyllu Skógræktarinnar í Þjórsárdal. 

Grenitrén sem gáfu timbrið voru gróðursett í Haukadalsskógi undir lok sjöunda áratugarins. Nokkuð hafði fallið af trjám í reitnum vegna storma og þótti skynsamlegast að fella hann allan og rækta upp á nýtt. Talsverð sjálfsáning er einnig í reitnum sem áhugavert verður að fylgjast með á komandi árum en til að tryggja endurnýjun verður gróðursett í hann einnig.

Tandrabretti sáu um fellinguna á liðnu vori og timbrið var flutt til vinnslu í starfstöð Skógræktarinnar að Skriðufelli í Þjórsárdal. Brúargólfið var klætt timbri frá Stálpastöðum í Skorradal árið 2012 en tíminn vinnur á þessu ágæta efni ásamt þungum ferðamannastraumnum svo nú var komið að endurnýjun.

Vegna þessara framkvæmda verður efsti hluti göngustígsins sem liggur ofan frá útsýnispallinum á Haki niður í Almannagjá lokaður alla daga frá klukkan 18 til 23 fram í byrjun desember. Það á þó einungis við um efstu 200 metra gjárinnar en Almannagjá er annars öllum aðgengileg frá bílastæðum að neðanverðu, eins og kemur fram í tilkynningu á Facebook-síðu þjóðgarðsins.

Þessi árstími er valinn til framkvæmdanna í von um að þær hafi sem minnst áhrif á gesti þjóðgarðsins.

Texti: Pétur Halldórsson
Heimild: Trausti Jóhannsson