Starfsmenn Vesturlandsdeildar Skógræktar ríkisins hafa á undan förnum vikum unnið hörðum höndum við aðfletta timbri sem  verður notað í dekkið á brúnni yfir ginnungagapið sem myndaðist í Almannagjá á Þingvöllum (sjá mynd á forsíðu Fréttablaðsins 3. júlí). Í þetta verkefni er notað sitkagreni úr Stálpastaðaskógi sem plantað var 1956 og er því 56 ára. Tvær sagir eru notaðar til verksins; gamla góða Wood Mizer bandsögin og svo nýja rammasögin sem var fengin frá Hallormstað í þetta verkefni.

Á meðfylgjandi myndum má sjá framleiðsluna.

06072012-3

06072012-4

Myndir og texti: Valdimar Reynisson