- 10 stk.
- 13.05.2020
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra undirritaði 13. maí 2020 samkomulag um tilrauna- og átaksverkefni með Vistorku og Akureyrarbæ þar sem molta verður nýtt í landbúnaði, skógrækt og landgræðslu á Norðurlandi. Framlag ráðuneytisins nemur 15 milljónum króna en heildarumfang verkefnanna er metið á um 40 milljónir. Skógræktin leggur til vinnu við ráðgjöf, umsjón og vinnu við rannsóknarþætti verkefnanna. Átakið er í þríþætt. Notuð verður molta til skógræktar og landgræðslu í umhverfi Akureyrar, til landgræðslu á Hólasandi og við repjurækt í Eyjafirði. Meðal annars á að setja aukinn kraft í gróðursetningu í Græna trefilinn ofan Akureyrar og leggja grunn að svokölluðum Moltulundi í kringum skíðasvæðið í Hlíðarfjalli. Auk ráðherra undirrituðu samkomlaguð þau Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri og Guðmundur Haukur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Vistorku.