Belgjurtatilraun á Hólasandi
- 14 stk.
- 11.09.2020
Skógræktin og Landgræðslan standa saman að nýrri tilraun á Hólasandi þar sem kannað verða hvernig sjö tegundir belgjurta þrífast á sandinum með hjálp moltu. Markmiðið er að finna hentugar niturbindandi tegundir sem hjálpað geta birki að vaxa upp á örfoka landi. Belgjurtategundirnar sem settar voru niður í tilrauninni eru gullkollur (Anthyllis vulneraria), hvítsmári (Trifolium repens), rauðsmári (Trifolium pratense), umfeðmingur (Vicia cracca), baunagras (Lathyrus japonicus), seljahnúta (Astragalus alpinus) og maríuskór (Lotus corniculatus). Allar þessar tegundir vaxa villtar á Íslandi nema þær tvær síðastnefndu. Engin þeirra er hins vegar svo stórvaxin eða frek að hún skyggi á aðrar tegundir og því ættu þær allar að geta hjálpað litlum birkiplöntum að vaxa úr grasi. Markmiðið með tilrauninni er að skoða hvort þessar tegundir geta þrifist á sandinum með aðstoð moltu. Hugmyndin er að moltan hjálpi birki og belgjurtum að komast á legg og belgjurtirnar haldi svo áfram að sjá birkinu fyrir nitri til vaxtar og viðgangs. Niðurstöður tilraunarinnar gætu gefið vísbendingar um hverjar þessara tegunda séu vænlegar til að leika þetta hlutverk sem hjálparkokkar birkisins þar sem næringarástand í jarðvegi er lélegt.
Skoða myndir