- 15 stk.
- 21.08.2020
Björn Traustason sérfræðingur var á ferð um Austur- og Suðurland í ágúst 2020 ásamt tveimur sumarstarfsmönnum Mógilsár, Hjördísi Jónsdóttur, og Sverri Baldri Torfasyni. Hjördís er góður ljósmyndari og tók meðfylgjandi myndir á Hallormsstað, Kirkjubæjarklaustri og í Múlakoti Fljótshlíð þar sem mæld voru hávaxin tré að þessu sinni. Hæsta sitkagrenið nálgast óðum 30 metra og hæsta öspin er komin yfir 26 metra.