- 6 stk.
- 17.11.2020
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, tók föstudaginn 13. nóvember 2020 við fyrsta eintakinu af nýju riti sem hefur að geyma viðskiptaflokkun á timbri úr íslenskum barrtrjám. Reglur um slíka flokkun eru mikilvægt skref í uppbyggingu timburiðnaðar hérlendis. Ritið heitir Gæðafjalir - viðskiptaflokkun á timbri úr barrtrjám.