- 13 stk.
- 17.12.2020
Límtré Vírnet á Flúðum hóf árið 2020 að búa til fyrstu límtrésbitana úr íslensku timbri sem notaðir eru í meiri háttar mannvirki. Límtrésbitarnir eru hluti af burðarvirki 102 metra langrar göngu- og reiðbrúar yfir Þjórsá sem Landsvirkjun reisir. Brúin er líka til öryggis fær bílum ef til neyðartilvika kemur. Á þessum myndum sést framleiðsluferli límtrésvinnslu og á myndunum er unnið með íslenskt greni úr Haukadalsskógi. Myndirnar eru frá Einari Bjarnasyni, gæðastjóra hjá Límtré Vírneti.