- 26 stk.
- 06.11.2020
Hinn 25. júní 2020 var liðin hálf öld frá því að þeir Rögnvaldur Erlingsson og Hallgrímur Þórarinsson, bændur á Víðivöllum ytri, gróðursettu fyrstu trjáplönturnar í svonefndri Fljótsdalsáætlun. Þessi gróðursetning markaði upphaf bændaskóga á Íslandi sem nú þekja um 21 þúsund hektara og eru um helmingur ræktaðra skóga í landinu. Í grein eftir Skúla Gunnarsson, formann Félags skógarbænda á Austurlandi, er tímamótanna minnst með því að rifja upp aðdragandann og skoða afraksturinn. Greinin birtist í Bændablaðinu 22. október 2020 og í kjölfarið á vef Skógræktarinnar.