- 8 stk.
- 14.12.2020
Nemendur Kirkjubæjarskóla og Heilsuleikskólans Kærabæjar á Kirkjubæjarklaustri unnu að því fyrir jólin 2020 að búa til ævintýraskóg í Skógarlundinum á Klaustri í samvinnu við Vatnajökulsþjóðgarð og Skógræktina. Markmiðið var meðal annars að fólk hefði stað til að upplifa jólastemmningu án þess að hafa áhyggjur af sóttvörnum á tímum COVID-19
Ævintýraskógurinn nær frá Systrafossi og í gegnum dimmasta hluta skógarins (fyrri hluta grænu leiðarinnar). Nemendur skólanna skreyttu skóginn og ýmsar verur fóru þar á kreik.