Haldið á Egilsstöðum í samstarfi við Vinnueftirlitið
Námskeiðið er ætlað bændum og þeim sem vinna við búskap en er einnig opið öðrum áhugasömum.
Tveggja daga bóklegt námskeið sem veitir réttindi til að taka verklegt vinnuvélapróf á dráttarvélar, liðléttinga og ýmsar minni gerðir vinnuvéla í réttindaflokki „I“ og lyfturum í flokki „J“, þar með talið skotbómulyftara. Námskeiðið er hefðbundið vinnuvélanámskeið en er aðlagað að bændum. Einnig verður fjallað um gerð áætlunar um öryggi og heilbrigði (áhættumat starfa) á vinnustað.
Ávinningur:
Bókleg réttindi á vinnuvélar í réttindaflokkum „I“ og „J“. Aukin þekking á vinnuverndarmálum og hvernig á að gera áhættumat starfa.
1. hluti, fyrri dagur. Vinnuvernd og áhættumatsgerð.
Hægt er að skrá sig eingöngu á 1. hlutann ef viðkomandi er með vinnuvélaréttindi en vill fara yfir vinnuverndarmál og gerð áhættumats með viðeigandi gátlistum. Verðið er þá eingöngu 5.900kr.
2. hluti fyrri dagur og 3. og 4. hluti seinni dagur.
Ýmsir fræðilegir þættir og öryggi, dráttarvélar með tækjabúnaði og ýmsar minni gerðir véla/jarðvinnuvéla í réttindaflokki „I“ og lyftarar með allt að 10 tonna lyftigetu í réttindaflokki „J“.
Námskeiðinu lýkur með skriflegu krossaprófi, sem lagt er fyrir að loknum 4. hluta.
|