Garðyrkjuskólinn - FSu býður upp á námskeið í trjáfellingum og meðferð keðjusagar dagana 18.-20. apríl í starfstöð Lands og skógar í Vaglaskógi Fnjóskadal. Hámarksfjöldi þátttakenda er tíu.

Námskeiðið er öllum opið. Það hentar bæði byrjendum og þeim sem hafa notað keðjusagir en vilja bæta fellingartækni sína eða öðlast meiri þekkingu á meðferð og umhirðu saga. Hámarksfjöldi þátttakenda er 10.

  • Námskeiðið er bæði bóklegt og verklegt.

  • Fyrsti dagur er bóklegur þar sem meðal annars er farið yfir fellingartækni, öryggisatriði við
    fellingu trjáa og líkamsbeitingu. Farið verður yfir leyfi og öryggissjónarmið varðandi fellingu trjáa í þéttbýli. Einnig verður fjallað um val á trjám til fellinga og komið inn á grisjun skóglenda, trjáþyrpinga og garða.

  • Á öðrum degi fá nemendur að kynnast innviðum keðjusagarinnar með því að taka þær í sundur. Farið verður yfir það hvernig framkvæma eigi einfalda bilanaleit í söginni, ásamt hefðbundnu viðhaldi, þrif sagar og brýningu keðju.

  • Loks verður einn og hálfur verklegur dagur í trjáfellingum og grisjun í skógi, þar sem lögð verður áhersla á rétta fellingartækni og uppröðun viðarins.

Þeir nemendur sem eiga keðjusög, keðjusagarbuxur, keðjusagarstígvél eða hjálm eru beðnir að taka búnað sinn með á námskeiðið. Aðrir geta fengið búnaðinn lánaðan á námskeiðinu.

  • Kennari: Björgvin Örn Eggertsson skógfræðingur hjá Garðyrkjuskólanum - FSu (Fjölbrautaskóla Suðurlands).

  • Tími: (3x)
    - Fim. 18. apr. kl. 9-17.30.
    - Fös. 19. apr. kl. 9-17.30.
    - Lau. 20. apr. kl. 9-16.

  • Staður: Hjá Landi og skógi, Vöglum í Fnjóskadal (28 kennslustundir). Námskeiðið er á framhaldsskólastigi og má meta til 1 einingar af námi í garðyrkjufræðum.

  • Verð: 79.000 kr. (kennsla og gögn innifalin í verði).

  • Skráning: Í netfangið gardyrkjuskolinn@fsu.is.

  • Skráningarfrestur er til 10. apríl.