Haldið í samstarfi við IÐUNA fræðslusetur

Námskeið er fyrir allt áhugafólk um garðyrkju sem vill kynna sér hvernig standa skuli að klippingu trjáa og runna.

Námskeiðið er bæði bóklegt og verklegt. Nemendur kynnast helstu vélum og verkfærum sem notuð eru til trjá- og runnaklippinga. Fjallað verður um trjáklippingar og hvernig meta skal ástand trjágróðurs. Einnig er fjallað um almennar runnaklippingar og limgerðisklippingar. Verklegar æfingar í trjáklippingum.

Nemendur taki með sér þau verkfæri sem þeir eiga og vinnufatnað í samræmi við veður í verklega tíma.

Kennari: Ágústa Erlingsdóttir skrúðgarðyrkjumeistari, brautarstjóri skrúðgarðyrkjubrautar við LbhÍ.

Tími: Lau. 2. mars, kl. 09-15 (8 kennslustundir) hjá Landbúnaðarháskóla Íslands, Reykjum Ölfusi

Verð: 19.500 kr. (Kaffi, hádegismatur og gögn innifalin í verði).

Sækja um: Vefur Endurmenntunar LbhÍ