Valdimar Reynisson, skógfræðingur og skógræktarráðgjafi, kennir á námskeiði sem Endurmenntun LbhÍ heldur 21. janúar í samstarfi við Skógræktina um umhirðu ungskóga.  Á námskeiðinu verður fjallað um mikilvægi umhirðu ungskóga og ávinning umhirðunnar enda mikilvægt að vanda vel til verka við framkvæmdir og sinna skógum vel strax frá upphafi.

Kennslan verður bæði bókleg og verkleg. Farið verður yfir á námskeiðinu hvaða verk eru unnin á þessu stigi við umhirðu í ungskógi, svo sem tvítoppaklippingu, uppkvistun, snemmgrisjun, tiltekt og áburðargjöf. Farið verður í nærliggjandi skóglendi þar sem skógrækt verður skoðuð.

Námskeiðið hentar vel öllum skógareigendum og skógarverktökum og getur einnig nýst hverjum þeim sem hyggjast vinna með ungskóga, svo sem starfsmönnum sveitarfélaga eða meðlimum skógræktarfélaga.

Kennari er Valdimar Reynisson, skógræktarráðgjafi hjá Skógræktinni. Valdimar er með langa reynslu í skógrækt. Hann lauk námi frá Garðyrkjuskóla ríkisins árið 1990 af námsbrautinni Skógur og umhverfi, BS-gráðu í skógfræði frá Landbúnaðarháskóla Íslands 2007 og meistaraprófi í skógarstjórnun (forest management) frá SLU í Svíþjóð 2011. Hann hefur starfað við allt sem við kemur skógrækt, sem vélamaður, skógarhöggsmaður, verkstjóri, skógarvörður, verktaki og skógræktarráðgjafi.

  • Tími: Lau. 21. janúar kl. 10-16
  • Staður: Hjá LBHÍ á Hvanneyri og í nærliggjandi skóglendi
  • Verð: 33.000 kr. (innifalið í verði er verkleg og bókleg kennsla, kaffiveitingar og léttur hádegisverður)
  • Athygli er vakin á að flest stéttarfélög styrkja félagsmenn sína
    til að sækja nám og námskeið

Sækja um