Endurmenntun græna geirans hjá Garðyrkjuskólanum - FSU heldur námskeið í fellingu trjáa og grisjun með keðjusög á Tálknafirði dagana 17. til 19. febrúar.

Námskeiðið er bæði bóklegt og verklegt.

  1. Fyrsti dagurinn er bóklegur og þar verður meðal annars farið yfir fellingartækni, öryggisatriði við fellingu trjáa og líkamsbeitingu. Farið verður yfir leyfi og öryggissjónarmið við fellingu trjáa í þéttbýli. Einnig verður fjallað um val á trjám til fellingar og komið inn á grisjun skóglendis, trjáþyrpinga og garða.
  2. Á öðrum degi fá nemendur að kynnast innviðum keðjusagarinnar með því að taka hana í sundur. Farið verður yfir hvernig framkvæma skuli einfalda bilanaleit í söginni, ásamt hefðbundnu viðhaldi, þrifum sagar og brýningu keðju.
  3. Loks verður einn og hálfur verklegur dagur í trjáfellingum og grisjun í skógi, þar sem lögð verður áhersla á rétta fellingartækni og uppröðun viðarins.

Þeir nemendur sem eiga keðjusög, keðjusagarbuxur, keðjusagarstígvél eða hjálm taki slíkan búnað með sér á námskeiðið. Aðrir geta fengið búnað lánaðan á námskeiðinu.

  • Kennsla: Björgvin Örn Eggertsson, skógfræðingur hjá Garðyrkjuskólanum - FSU
  • Tími: Föstudagur 17. febrúar kl. 9-17.30, laugardagur 18. febrúar kl. 9-17.30 og sunnudagur 19. febrúar kl. 9-16 á Tálknafirði.
  • Námskeiðið er á framhaldsskólastigi og má meta til einnar einingar af námi í garðyrkjufræðum
  • Skráning: gardyrkjuskolinn@fsu.is
  • Verð: 74.000 kr. (kennsla og gögn innifalin í verði)

Skráningarfrestur er til 10. febrúar

Sett á skogur.is: Pétur Halldórsson