Haldið í samstarfi við IÐUNA fræðslusetur

Námskeið sem hefur þróast upp úr námskeiðinu Lesið í skóginn tálgað í tré sem hefur verið kennt í frá árinu 2001 og hefur notið mikilla vinsælda.

Námskeiðið er öllum opið. Það hentar t.d  smíðakennurum, almennum kennurum, sumarbústaðafólki, skógareigendum, skógræktarfólki, handverksfólki og öðrum er vilja læra hvernig hægt er að smíða úr því efni sem fellur til við grisjun.

Á námskeiðinu:

  • lærir þú að nýta grisjunarefni í húsgagnagerð og aðrar hagnýtar nytjar
  • þú kynnist eiginleikum einstakra viðartegunda og nýtingu þeirra
  • lærir þú að setja saman kolla og bekki úr greinaefni og bolviði/skógarfjölum
  • þú kynnist fersku og þurru efni og samsetningu þess
  • þú lærir að afberkja, ydda, setja sama og fullvinna húsgögnin, yfirborðsmeðferð og fúavörn

Öll verkfæri og efni til staðar. Verið í vinnufatnaði á námskeiðinu. Allir fara heim með einn koll og bekk.

Kennsla: Ólafur Oddsson, fræðslufulltrúi Skógræktarinnar og verkefnisstjóri Lesið í skóginn, og Ólafur G.E. Sæmundsen skógtæknir.

Tími: Fös. 1. mars, kl. 16-19 og  lau. 2. mars, kl. 09-16 (14 kennslustundir) hjá Skógræktarfélagi Árnesinga á Snæfoksstöðum í Grímsnesi.

Verð: 31.000 kr. (Kaffi, hádegismatur og efni innifalið í verði)

Skráning til 22. feb.

Sækja um