Haldið í samstarfi við IÐUNA fræðslusetur

Námskeið þetta er framhald námskeiðsins Húsgagnagerð úr skógarefni I sem hefur verið kennt í frá árinu 2009 og notið mikilla vinsælda.

Námskeiðið er eingöngu ætlað þeim sem sótt hafa námskeiðið Húsgagnagerð I hjá LbhÍ og hafa kynnt sér viðkomandi tálgutækni, „þurrt í blautt“ samsetningar á kolli, bekk og tréhamri og notað yddara, borvélar, afberkingaráhöld, axir, klippur og sagir við húsgagnagerðina og í skógarvinnu.

Á námskeiðinu:

  • hanna þátttakendur og vinna frummyndir úr greinaefni
  • er rifjað upp verklag og notkun áhalda frá fyrra námskeiði og byggt ofan á þá reynslu
  • læra þátttakendur að sækja sér efni í skóg til að útbúa greinahaldara, dýr og húsgögn
  • er fjallað um umhirðu og viðargæði trjágróðurs
  • er fjallað eiginleika og galla einstakra íslenskra viðartegunda
  • er fjallað um yfirborðsmeðhöndlun, viðarvörn inni og útihúsgagna
  • er fræðsluefni skoðað sérstaklega hjá netmiðlum og víðar

Öll verkfæri og efni eru til staðar.  Þátttakendur þurfa að vera í vinnufatnaði á námskeiðinu og taka með fatnað til útiveru. Allir fara heim með afrakstur námskeiðsins.

Kennarar: Ólafur Oddsson, fræðslufulltrúi Skógræktarinnar og verkefnisstjóri Lesið í skóginn, og Ólafur G.E.Sæmundsen skógtæknir.

Tími: Fös. 29. mars, kl. 16:00-19:00 og  lau. 30. mars, kl. 09:00-16:00 (14 kennslustundir) hjá Skógræktarfélagi Árnesinga á Snæfoksstöðum í Grímsnesi.

Verð: 33.500 kr. (Kaffi, hádegismatur og efni innifalið í verði)

Skráning til 21. mars.

Sækja um