Aðalfundur Vina Þórsmerkur verður haldinn í sal Ferðafélags Íslands í Mörkinni í kvöld, miðvikudaginn 28. nóvember kl. 20:00. Á dagskrá fundarins verða hefðbundin aðalfundarstörf, auk þess að fjallað verður um útbreiðslu birkiskóga á Þórsmerkursvæðinu, lúpínu á Þórsmerkursvæðinu, göngubrú yfir Markarfljót og stígaviðhald, auk skipulagsmála.