Skógræktin með fulltrúa í pallborði

Skráningu lýkur í dag á tíunda Umhverfisþing sem haldið verður föstudaginn 20. október 2017 í Silfurbergi í Hörpu í Reykjavík. Að þessu sinni verða loftslagsmál í brennidepli þingsins. Hreinn Óskarsson, sviðstjóri samhæfingarsviðs Skógræktarinnar, verður fulltrúi Skógræktarinnar í pallborði.

Á þinginu verða flutt erindi um hinar margvíslegu hliðar loftslagsbreytinga,  áhrif þeirra á Ísland og hvernig best verður tekist á við þær breytingar sem fylgja hlýnun jarðar. Þinginu lýkur með pallborðsumræðum. 

Heiðursgestur þingsins verður Monica Araya frá Costa Rica. Hún er doktor í umhverfisfræði og mikill frumkvöðull í heimalandi sínu í öllu er varðar sjálfbærni, þróun hreinnar tækni og vistvænna orkugjafa. Erindi hennar mun fjalla um möguleika lítilla ríkja á að vera í fararbroddi í loftslagsmálum.

Þingið er öllum opið meðan húsrúm leyfir, en nauðsynlegt er að þátttakendur skrái sig eigi síðar en 18. október nk.

Hægt verður að fylgjast með Umhverfisþingi í beinni útsendingu á vef umhverfis- og auðlindaráðuneytisins.


Dagskrá

X. Umhverfisþing, 20. október 2017 í Hörpu, Reykjavík


  • 08.30     Innritun og kaffi
  • 09.00     Þingsetning og ávarp Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra.
  • 09.15     Hvernig getur lítið land verið í fararbroddi í loftlagsmálum? Heiðursgestur þingsins, Monica Araya 
  • 09.45     Raddir ungu kynslóðarinnar: Hvernig framtíð viljum við?  Bríet Felixdóttir og Saga Rut Sunnevudóttir,                       nemendur í Menntaskólanum við Hamrahlíð

10.30     Kaffihlé

 Hvaða áhrif hafa loftslagsbreytingar á Ísland?

  • 10.00    Loftslagsbreytingar – áhrif á Ísland Halldór Björnsson, Veðurstofu Íslands
  • 10.15    Hafið við Ísland – súrnun og hlýnun Sólveig Rósa Ólafsdóttir, Hafrannsóknastofnun

Losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi – hvernig er staðan og hvert stefnir?

  • 11.00    Þróun losunar og staða Íslands gagnvart Kýótó-bókuninni Kristín Linda Árnadóttir, forstjóri                                        Umhverfisstofnunar
  • 11.15    Möguleikar Íslands til að draga úr losun Brynhildur Davíðsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands
  • 11.30    Möguleikar almennings við að draga úr kolefnisfótspori Brynhildur Pétursdóttir, framkvæmdastjóri                          Neytendasamtakanna
  • 11.45    Ný aðgerðaáætlun í loftslagsmálum – stöðuskýrsla Sigurður Ingi Friðleifsson, framkvæmdastjóri                                Orkuseturs Íslands

12.00     Matarhlé

Hvert viljum við stefna? Þýðir minni losun minni lífsgæði?

  • 13.00    Orkuskipti – af hverju? Jón Björn Skúlason, framkvæmdastjóri Íslenskrar nýorku
  • 13.15    Loftgæði og lýðheilsa Ragnhildur Guðrún Finnbjörnsdóttir, sérfræðingur á sviði náttúru,                                                   Umhverfisstofnun
  • 13.30    Frá landi til lofts og tilbaka Hafdís Hanna Ægisdóttir, forstöðumaður Landgræðsluskóla S.þ.
  • 13.45    Hvað græða fyrirtæki á að vera græn Ketill Magnússon, framkvæmdastjóri Festu

Pallborðsumræður – Hvernig getum við best dregið úr losun og eflt bindingu?

  • Auður H. Ingólfsdóttir Háskólanum á Akureyri; Birgir Þór Harðarson Kjarnanum; Bryndís Skúladóttir Samtökum iðnaðarins; Guðjón Bragason Sambandi íslenska sveitarfélaga; Hreinn Óskarsson Skógræktinni; Rannveig Magnúsdóttir Landvernd; Sigurður Ingi Friðleifsson Orkusetri; Sunna Áskelsdóttir Landgræðslu ríkisins; Þorsteinn Sigfússon Nýsköpunarmiðstöð Íslands.

15.00     Þingslit og léttar veitingar