Unnið með keðjusög að vetri. Nám í trjáfellingum og grisjun með keðjusög er hagnýtt fyrir allt skógr…
Unnið með keðjusög að vetri. Nám í trjáfellingum og grisjun með keðjusög er hagnýtt fyrir allt skógræktarfólk

Garðyrkjuskólinn - FSU heldur námskeið í trjáfellingum og grisjun með keðjusög á Hallormsstað 13.-15. nóvember 2022. Námskeiðið er öllum opið. Það hentar bæði byrjendum og þeim sem hafa notað keðjusagir en vilja bæta fellingartækni sína eða öðlast meiri þekkingu á meðferð og umhirðu saga. Hámarksfjöldi þátttakenda er 10.

Námskeiðið er bæði bóklegt og verklegt. Fyrsta daginn verður bókleg kennsla þar sem meðal annars verður farið yfir fellingartækni, öryggisatriði við fellingu trjáa og líkamsbeitingu. Farið verður yfir leyfi og öryggissjónarmið varðandi fellingu trjáa í þéttbýli. Einnig verður fjallað um val á trjám til fellinga og komið inn á grisjun skóglenda, trjáþyrpinga og garða. Á öðrum degi fá nemendur að kynnast innviðum keðjusagarinnar með því að taka hana í sundur. Farið verður yfir það hvernig framkvæma skal einfalda bilanaleit í söginni, ásamt hefðbundnu viðhaldi, þrifum sagar og brýningu keðju. Loks verður einn og hálfur verklegur dagur í trjáfellingum og grisjun í skógi, þar sem lögð verður áhersla á rétta fellingartækni og uppröðun viðarins.

Þeir nemendur sem eiga keðjusög, keðjusagarbuxur, keðjusagarstígvél eða hjálm taki það með á námskeiðið. Aðrir geta fengið búnað lánaðan á námskeiðinu.

Kennari: Björgvin Örn Eggertsson, skógfræðingur hjá Garðyrkjuskólanum - FSu (Fjölbrautaskóla Suðurlands).

Tími: Sun. 13. nóv. kl. 9-17.30, mán. 14. nóv. kl. 9-17.30 og þri. 15. nóv. kl. 9-16 (3x) hjá Skógræktinni á Egilsstöðum og á Hallormsstað (28 kennslustundir). Námskeiðið er á framhaldsskólastigi og má meta til 1 einingar af námi í garðyrkjufræðum.

Skráning: Í netfangið gardyrkjuskolinn@fsu.is

Skráningarfrestur er til 7. nóvember.

Verð: 74.000 kr. (kennsla og gögn innifalin í verði).

UMSAGNIR

„Reyndir kennarar, mikið verklegt og mjög áhugavert.“

„Mjög fróðlegt – hæfilega mikið bóklegt hæfilega mikið verklegt.“

„Mjög gagnlegt, samantekt af góðri þekkingu og reynslu sem skilar sér til allra nemenda – frábært.“