Aðalsteinn Sigurgeirsson, fagmálastjóri Skógræktarinnar, er meðal þeirra sem ötullega hafa unnið að …
Aðalsteinn Sigurgeirsson, fagmálastjóri Skógræktarinnar, er meðal þeirra sem ötullega hafa unnið að skóggræðslu á Hafnarsandi. Hér er sitkagreni í lúpínu og melgresi á sandinum og þrífst vel. Mynd: Aðalsteinn Sigurgeirsson

Landgræðslu- og skógræktarverkefni á um 4.600 hekturum á Hafnarsandi

Íbúafundur um Þorláksskóga verður haldinn mánudaginn 16. apríl í Ráðhúsinu í Þorlákshöfn. Fundurinn hefst kl. 17 og lýkur kl. 18.30. Rætt verður um þá skógrækt sem áformuð er á ríflega 4.600 hektara svæði á Hafnarsandi í nágrenni Þorlákshafnar.

Verkefnið Þorláksskógar byggist á samningi milli Sveitarfélagsins Ölfuss, Landgræðslu ríkisins og Skógræktarinnar. Samningurinn var undirritaður í október 2016. Fyrirhugað skógræktarsvæði er um 4.620 ha svæði á Hafnarsandi við þéttbýlið Þorlákshöfn.

Meginmarkmið verkefnisins er að græða upp land og rækta skóga til að verjast náttúruvá, vernda byggð og auka nýtingarmöguleika svæðisins, s.s. til útivistar. Einnig er verkefninu ætlað að vinna að stefnu íslenskra stjórnvalda í loftslagsmálum í samræmi við Parísarsamkomulagið, endurheimt vistkerfa til að auka líffræðilega fjölbreytni, framkvæmd laga um skógrækt og laga um landgræðslu, styðja við atvinnuþróun og eflingu byggðar á svæðinu.

Dagskrá:

  • 17.00   Þorláksskógar – hvaða þýðingu hefur verkefnið fyrir samfélagið?
    Gunnsteinn R. Ómarsson bæjarstjóri og Árni Bragason landgræðslustjóri
  • 17.20   Með sandinn í skónum – reynslusaga íbúa Þorlákshafnar
    Edda Laufey Pálsdóttir, íbúi í Þorlákshöfn
  • 17.30   Þorláksskógar – markmið, ávinningur, verkáætlun og fjárhagsáætlun
    Garðar Þorfinnsson,Landgræðslu ríkisins og Hreinn Óskarsson Skógræktinni
  • 17.50   Engill í eigin tré – framtíðarsýn
    Aðalsteinn Sigurgeirsson Skógræktinni.
  • 18.10   Fyrirspurnir og umræður
  • 18.30   Fundarslit

Fundarstjóri: Anna Björg Níelsdóttir