Notendur rafræns dagatals Skógræktarinnar geta nú skipt um skjámynd á tölvum sínum og sett inn dagatal marsmánaðar. Á því er ljósmynd Atla Arnarsonar ljósmyndara af sveppnum stígtubbu.

Sveppur mánaðarins var myndaður í skóginum á Mógilsá við Kollafjörð þar sem aðalstöðvar rannsóknasviðs Skógræktarinnar eru til húsa. Stígtubba er fansveppur sem vex í þyrpingum á sprekum og stubbum eða í viðarkurli. Stígtubba er mest áberandi eftir rigningartíð síðsumars og á haustin. Hún er óæt.

Heimild: Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir sveppafræðingur

Dagatal Skógræktarinnar 2021 er aðgengilegt á rafrænu formi á vef Skógræktarinnar. Annars vegar er hefðbundið dagatal sem t.d. má prenta út. Hins vegar eru skjámyndir fyrir hvern mánuð ársins. Þessum skjámyndum má hlaða niður til uppsetningar á skjáborði tölvu og þar með er dagatal viðkomandi mánaðar alltaf innan seilingar.

Dagatal Skógræktarinnar 2021

Texti: Pétur Halldórsson