Teygjuhelma. Ljósmynd: Atli Arnarson
Teygjuhelma. Ljósmynd: Atli Arnarson

Notendur rafræns dagatals Skógræktarinnar geta nú skipt um skjámynd á tölvum sínum og sett inn dagatal júnímánaðar. Á því er ljósmynd Atla Arnarsonar ljósmyndara af sveppnum teygjuhelmu, Mycena epipterygia.

Sveppur mánaðarins hjá Skógræktinni var myndaður í skóginum á Mógilsá við Kollafjörð. Teygjuhelma vex yfirleitt í djúpum mosa í skógum, votlendi og lyngmóum. Hún er mest áberandi í ágúst og september. Þótt teygjuhelman sé breytileg, er auðvelt að þekkja hana frá öðrum helmum á slímugum, gulum stafnum. Hún er óæt.

Heimild: Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir sveppafræðingur.

Dagatal Skógræktarinnar 2021 er aðgengilegt á rafrænu formi á vef Skógræktarinnar. Annars vegar er hefðbundið dagatal sem t.d. má prenta út. Hins vegar eru  skjámyndir fyrir hvern mánuð ársins. Þessum skjámyndum má hlaða niður til uppsetningar á skjáborði tölvu og þar með er dagatal viðkomandi mánaðar alltaf innan seilingar.

Festa mynd á skjáborði

1. Smella á hlekkinn hér fyrir neðan. 2. Hægrismella með músinni á myndina þegar henni hefur verið hlaðið niður. 3. Smella á „velja sem skjáborðsmynd“ ( „set as desktop background“). Tilbúið!

Texti: Pétur Halldórsson