Skógræktarfélag Reykjavíkur stendur fyrir sveppanámskeiði í Heiðmörk laugardaginn 4. september. Leiðbeinandi verður Ása Margrét Ásgrímsdóttir, sveppaáhugakona og höfundur bókarinnar Matsveppir í náttúru Íslands. Ása Margrét leiðir áhugasama um kjörlendi sveppa í Heiðmörk og leiðbeinir við greiningu og tínslu. Áhugasömum náttúruunnendum gefst því kjörið tækifæri til að læra grunnatriðin í sveppatínslu og hægt verður að kaupa bók Ásu á staðnum. Lagt verður upp frá Furulundinum í Heiðmörk kl. 14:00. Munið að hafa meðferðis körfur og góða hnífa.