Háliðagras. Ljósmynd: Pétur Halldórsson
Háliðagras. Ljósmynd: Pétur Halldórsson

Erfðanefnd landbúnaðarins auglýsir eftir umsóknum um verkefnastyrki til rannsókna, lokaverkefna til prófs á háskólastigi, aðgerða sem stuðla að varðveislu og nýtingu erfðaauðlinda í landbúnaði eða kynningu og fræðslu til almennings um þessi efni.

Meginhlutverk erfðanefndar landbúnaðarins er að vinna að varðveislu og sjálfbærri nýtingu erfðaauðlinda í landbúnaði. Í því skyni hefur nefndin ákveðið að verja fjármunum í að styrkja einstök afmörkuð verkefni sem falla að því hlutverki.

Vísað er til stefnumörkunaráætlunar erfðanefndar varðandi nánari áherslur nefndarinnar.

Lögð er áhersla á að styrkja verkefni á eftirfarandi sviðum:

  • Rannsóknir er lúta að varðveislu og viðhaldi á erfðaauðlindum í landbúnaði.
  • Lokaverkefni til prófs á háskólastigi er tengjast varðveislu eða nýtingu á erfðaauðlindum í landbúnaði.
  • Aðgerðir er stuðla að sjálfbærri varðveislu eða nýtingu erfðaauðlinda í landbúnaði.
  • Kynning og fræðsla fyrir almenning um erfðaauðlindir í landbúnaði og gildi þeirra.

Einstaklingar og félagasamtök eru hvött til að sækja um styrki til verkefna sem hafa það að markmiði að stuðla að varðveislu eða sjálfbærri nýtingu innlendra erfðaauðlinda í landbúnaði.

Að jafnaði verða veittir styrkir á bilinu 200-900 þúsund krónur. Sérstök umsóknareyðublöð má finna hér.

Umsóknum skal skilað fyrir 8. maí 2020 til Birnu Kristínar Baldursdóttur, Landbúnaðarháskóla Íslands, Hvanneyri, 311 Borgarnes – birna@lbhi.is.

Sett á skogur.is: Pétur Halldórsson