frett_02052007_1Fimmtudaginn 3. maí, kl. 16-18, verður fundur haldinn á Elliðavatni í Heiðmörk. Þar mun framboðum til komandi Alþingiskosninga gefast kostur á að skýra og kynna stefnu sína í skógræktarmálum og skiptast á skoðunum við skógræktarfólk.

Að fundinum standa Landssamtök skógareigenda, Skógræktarfélag Íslands og Skógfræðingafélag Íslands ásamt fulltrúum stjórnmálaflokka.

Mynd: Elliðavatn, höfuðstöðvar Skógræktarfélags Reykjavíkur. Bærinn Elliðavatn stendur á eystri bakka samnefnds vatns, innan friðlandsins á Heiðmörk (Sjá kort HÉR).

 


Dagskrá

16:00 Fundarsetning

Agnes Geirdal, formaður félags skógarbænda á Suðurlandi, setur fund, býður gesti velkomna og skipar Davíð Þór Jónsson fundarstjóra.

16:10 Stutt erindi

  • Edda Oddsdóttir, Rannsóknastöð Skógræktar ríkisins, Mógilsá: Skógrækt á Íslandi
  • Jón Geir Pétursson, Skógræktarfélag Íslands: Skógrækt úr vörn í sókn
  • Arnór Snorrason, Rannsóknastöð Skógræktar ríkisins, Mógilsá: Skógur og loftslagsmál

17:00 Pallborðsumræður með fulltrúum stjórnmálaflokka.  Hver flokkur flytur stutta framsögu og í kjölfarið verða umræður undir stjórn Davíðs Þórs Jónssonar.

  • Framsóknarflokkurinn: Guðni Ágústsson
  • Íslandshreyfingin: Ómar Ragnarsson og Ósk Vilhjálmsdóttir
  • Samfylkingin: Þórunn Sveinbjarnardóttir
  • Sjálfstæðisflokkurinn: Illugi Gunnarsson
  • Vinstri hreyfingin – grænt framboð: Álfheiður Ingadóttir og Friðrik Dagur Arnarson

Fundi slitið kl. 18.00