Starfsmannafundur Skógræktar ríkisins var haldinn á Hótel Héraði á Egilsstöðum mánudaginn 23. apríl s.l. Fundurinn var vel sóttur og voru um 50 starfsmenn frá öllum deildum Skógræktarinnar mættir til fundarins. Fundurinn hófst á ávarpi skógræktarstjóra og á eftir fylgdu framsögur um fjármál stofnunarinnar, stefnumótun í skógrækt ofl.

Í tengslu við starfsmannafund Skógræktar ríkisins var farið í óvissuferð inní Hallormsstað. Skógarmenn á Hallormsstað tóku vel á móti starfsfólki annara deilda og fóru með það í skoðunarferð um skóginn þar sem skoðaðar voru tilraunir ofl. Nýr viðarvagn var sýndur og fengu áhugasamir að taka í gripinn. Ferðin var vel heppnuð og lék veðrið við þátttakendur í ferðinni.