Þótt gróðursetning trjáplantna sem ræktaðar eru í gróðrarstöðvum sé algengasta aðferðin við skógrækt hér á landi er einnig hægt að sá til skóga. Sáning á birki hefur verið stunduð hér á landi frá upphafi Skógræktar ríkisins og má víða finna trjálundi sem sprottnir eru upp af fræi, s.s. Hákonarlund í Haukadal og Gunnlaugsskóg á Rangárvöllum. Einnig er mikið af sjálfsánum birkiskógum í löndum Skógræktar ríkisins og víða um land, s.s. í Þórmörk, Hallormsstað og Fnjóskadal. Sáningartilraunir hafa verið gerðar af Jóni Geir Péturssyni og má lesa um niðurstöður þeirra hér.

Lítið hefur þó verið notast við beinar sáningar í skógrækt, þó má finna dæmi þess. Í nóvember 2004 sáði skógarvörðurinn á Suðurlandi hálfu kílói af stafafuru og hálfu kílói af birkifræi í um 1 ha spildu í Mosfelli í Grímsnesi. Um var að ræða framræst land norðan við Einbúa í Mosfelli sem var tætt vorið 2004. Í dag er að vaxa upp blandskógur af stafafuru og birki eins og meðfylgjandi myndir sýna. Einnig er töluvert af víði og viðju að spretta upp á svæðinu. Meðfylgjandi myndir segja meira en mörg orð. Vetrarmyndirnar sýna svæðið eins og það leit út við sáningu og myndir sem teknar voru í byrjun september í ár sýna trjágróðurinn sem er að vaxa upp á svæðinu. Beinsáning er því vænleg aðferð sem stunda mætti í meira mæli hér á landi.


frett_10102011_4

frett_10102011_5

frett_10102011_6

frett_10102011_7


frett_10102011_1

frett_10102011_3

Texti og myndir: Hreinn Óskarsson, skógarvörður á Suðurlandi.