Skógræktarfólk úr Garðabæ á ferð vestan hafs.  Af vef Skógræktarfélags Garðabæjar.
Skógræktarfólk úr Garðabæ á ferð vestan hafs. Af vef Skógræktarfélags Garðabæjar.

Myndasýning hjá Skógræktarfélagi Garðabæjar

Skógræktarfélag Garðabæjar býður til myndasýningar frá ferð Skógræktarfélags Íslands um Alberta og Bresku-Kólumbíu í Kanada í september 2017.

Sigurður Þórðarson sýnir myndir og rekur ferðasöguna.

Myndakvöldið verður haldið mánudaginn 30. október og hefst kl. 20 í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli við Kirkjulund í Garðabæ. Boðið verður upp á kaffi í hléi.

Allir velkomnir