Sigríður Júlía Brynleifsdóttir skógfræðingur kennir á námskeiði um skógarhönnun og landnýtingaráætlanir sem haldið verður á vegum Endurmenntunar LbhÍ í janúar 2023 í samvinnu við Skógræktina.

Á námskeiðinu verður fjallað um helstu aðferðir við gerð landnýtingaráætlana og þeirra fjölmörgu atriða sem taka þarf tillit til s.s. minja og náttúruvernd, landslags, markmið skógræktar og loks skógræktarskilyrða.

Farið verður í heildarskipulagningu bújarða þar sem skóg- og skjólbeltarækt er hluti af landnýtingunni.
Skoðaðir verða þættir eins og landlæsi, skógræktarskilyrði, umhverfisvernd, landslagsmótun með skógi,
val á trjátegundum miðað við aðstæður og markmið með skógræktinni.

Námskeiðið samanstendur af fyrirlestrum, umræðum og í lokin verklegri æfingu þar sem þátttakendur vinna með sína jörð og hefjast handa við gerð landnýtingaráætlunar.

Kennari námskeiðsins er Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, fyrrverandi sviðstjóri hjá Skógræktinni, sem nú starfar sem kennslustjóri hjá Lýðskólanum á Flateyri. Sigríður er búfræðingur og skógfræðingur, með BS-próf í landnýtingu og meistarapróf í skógfræði.

  • Tími: Laugardaginn 14. janúar kl. 10-16
  • Staður: Hjá LBHÍ á Hvanneyri
  • Verð: 33.000 kr. (innifalið í verði er kennsla, hádegisverður og kaffiveitingar)

Athygli er vakin á að flest stéttarfélög styrkja félagsmenn sína til að sækja nám og námskeið. Þátttakendur eru hvattir til að kanna réttindi sín í þeim efnum og sækja stuðning til endurmenntunar.