Fyrir skömmu kom danski skógarverktakinn Peter Laursen til Ísland í boði skógræktarstjóra Skógræktar ríkisins. Tilefni ferðarinnar var að fá mat Peters á því hvort komið væri að þeim tímapunkti í íslenskri skógrækt að hægt væri að nota skógarhöggsvél til að takast á við þau stóru grisjunarverkefni sem framundan eru í þjóðskógum landsins. Mat Peters var að hér væri orðin til verðmæt auðlind sem væri fyllilega sambærileg við það sem gerðist í Danmörku. Stóru sitkagreni-skógarnir í Skorradal væru af þeirri stærðargráðu að þar væri hægt að nota stórvirkar skógarhöggsvélar.

Í framhaldi af ferð Peters var ákveðið að fá til landsins skógarhöggsvél til reynslu og spreyta sig í sitkagreniskógunum á Stálpastöðum í Skorradal. Í þessari fyrstu atrennu mun vélin vinna á Stálpastöðum til 21. desember.

Mikill áhugi er á skógarhöggsvélinni og ákvað Skógrækt ríkisins því að bjóða áhugafólk og fjölmiðla velkomna á Stálpastaði í dag, 17. desember. Þátttaka var mjög góð. Vélstjórinn, Lars Fredlund, sýndi virkni vélarinnar og svaraði spurningum. Skógrækt ríkisins bauð áhugafólki upp á ketilkaffi og smákökur.

Myndir frá deginum má sjá hér. Fleiri myndir eru væntanlegar eftir helgina.

 

 Skógarhöggsvél á Stálpastöðum

Skógarhöggsvél á Stálpastöðum

Skógarhöggsvél á Stálpastöðum

Skógarhöggsvél á Stálpastöðum

Skógarhöggsvél á Stálpastöðum

Skógarhöggsvél á Stálpastöðum

 

Myndir: Esther Ösp Gunnarsdóttir