Frímerki frá Póstinum
Frímerki frá Póstinum

Í tilefni af Alþjóðlegu ári skóga hefur Pósturinn gefið út sérstök frímerki. Í tilkynningu frá Póstinum segir:

Fyrra frímerkið sýnir nærmynd af laufblaði og táknar vistkerfisþjónustu sem skógar veita, sérstaklega þá að binda kolefni úr andrúmsloftinu. Seinna frímerkið sýnir þversnið af trjábol og er táknrænt fyrir skóginn sem auðlind, þ.e. sem framleiðanda trjáviðar.

frimerki_aas_1Nútíma Íslendingar hafa tilhneigingu til að líta á skóg sem þátt í landslagi en síður sem auðlind. Skógar fortíðar framleiddu byggingarefni, eldivið, viðarkol til járnsmíða og fóður fyrir búfé.

Með nútíma skógrækt eru Íslendingar að byggja upp sína eigin skógarauðlind á ný. Skógar veita einnig margskonar  vistkerfisþjónustu, svo sem að vernda vatn og jarðveg og vera búsvæði fyrir fjölda lífvera. Laufblöð og nálar draga koltvísýring (CO2) úr andrúmslofti og þannig hjálpa skógar til við að draga úr gróðurhúsáhrifum í andrúmsloftinu.



Texti og myndir: Pósturinn