Vetur í skógi í grennd við Arkangelsk. Mynd: Xxxl - Russian Wikipedia
Vetur í skógi í grennd við Arkangelsk. Mynd: Xxxl - Russian Wikipedia

Páll Sigurðsson flytur erindi á Hvanneyri

Náttúrufar í norðvestanverðu Rússlandi, skógarnir þar og mannlífið, er viðfangsefni dr Páls Sigurðssonar, skógfræðings hjá Landbúnaðarháskóla Íslands, í fræðsluerindi sem hann flytur á Hvanneyri mánudaginn 28. nóvember kl. 16.

Páll bjó í Rússlandi í átta ár þar sem hann lauk BS- og MS-gráðum í skógfræði og doktorsgráðu í skógtækni. Að námi loknu starfaði hann við skógfræðideild háskólans í Arkangelsk, áður en hann flutti ásamt fjölskyldu sinni heim til Íslands. Páll er því hafsjór af fróðleik og spennandi að læra af erindi hans um náttúru og skógarmenningu NV-Rússlands.

Fræðsluerindið er í boði Skógræktarfélagsins Dafnars á Hvanneyri, félags skógfræðinema við Lbhí. það verður haldið kl. 16 mánudaginn 28. nóvember í Ársal, 3. hæð Ásgarðs, aðalbyggingar Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri.

Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir!