Edda S. Oddsdóttir, plöntuvistfræðingur á Mógilsá, varaði í erindi sínu við innflutningi lifandi pla…
Edda S. Oddsdóttir, plöntuvistfræðingur á Mógilsá, varaði í erindi sínu við innflutningi lifandi plantna, meðal annars jólatrjáa, sem gætu flutt með sér meindýr og plöntusjúkdóma. Stefna skyldi að því að öll jólatré yrðu framleidd innanlands og innflutningi hætt.

Föstudagserindi Líffræðistofu

Edda Sigurdís Oddsdóttir, sérfræðingur hjá Skógrækt ríkisins að Mógilsá flytur föstudagserindi líffræðistofu á morgun, föstudaginn 5. febrúar kl. 12.30 í stofu 131 í Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands. Rannsóknir Eddu snúast um líffræði hryggleysingja í jarðvegi og gróðurlendi á Íslandi. Erindið fjallar um skaðvalda á trjám í fortíð, nútíð og framtíð og áhrif hlýnunar.

Í fyrirlestrinum verður farið stuttlega yfir landnámssögu nýrra liðdýrategunda sem lifa á trjám og runnum á Íslandi og breytingar á faraldsfræði þeirra. Frá byrjun tuttugustu aldar til ársins 2012 hafa alls 27 slíkar tegundir numið hér land. Ein þessara tegunda, furulús, er talin hafa verið meginorsakavaldur að dauða nær allrar skógarfuru hér á landi. Hraði landnáms reyndist vera mestur á hlýskeiðum og skordýrafaraldrar í birkiskógum reyndust einnig vera mestir á hlýskeiðum. Eftir 1990 hafa orðið verulegar breytingar á faraldsfræði annarra meindýra í skógum hér á landi og verða þeim gerð skil í fyrirlestrinum.

Fyrirlesturinn er byggður á greininni „New arthropod herbivores on trees and shrubs in Iceland and changes in pest dynamics: A review“ sem birtist í Icelandic Agricultural Sciences árið 2013. Edda flutti fyrirlestur um svipuð efni á ráðstefnunni Tímavélinni hans Jóns sem haldin var á Egilsstöðum 20. janúar.