Á tjaldstæðunum þremur í Hallormsstaðaskógi, Vaglaskógi og Þjórsárdal, voru um 25.200 gistinætur á nýliðnu sumri.

Flestir gestir nýttu sér tjaldstæðin í Atlavík í Hallormsstaðskógi, en þar voru tæplega 11.700 gistinætur, um 9.500 gistinætur voru í Vaglaskógi og um 4 þúsund í Sandártungu í Þjórsárdal.