Minningarsjóður Hjálmars R. Bárðarsonar og Else S. Bárðarson auglýsir eftir umsóknum um rannsóknastyrki í landgræðslu og skógrækt, með sérstakri áherslu á vistfræði lúpínu og landgræðsluskógrækt með lúpínu. Til úthlutunar verða samtals 4,8 milljónir króna. Styrkirnir eru lausir til umsóknar frá og með 1. desember 2011 og umsóknum skal skilað eigi síðar en 10. janúar 2012.

Umsókn, ásamt fylgigögnum, skal skila í einu pappírseintaki og á tölvutæku formi (á geisladiski sem rtf, pdf eða word skjal). Ófullgerðum umsóknum verður vísað frá. Umsóknum skal senda merktar „Minningarsjóður Hjálmars R. Bárðarsonar og Else S. Bárðarson" til Landgræðslusjóðs, Skúlatúni 6, 105 Reykjavík.

Sækja umsóknareyðublað


Frétt: Langræðsla ríkisins
Mynd: Esther Ösp Gunnarsdóttir