Á Gunnfríðarstöðum á Bakásum í Austur-Húnavatnssýslu er vaxinn upp myndarlegur skógur með ýmsum trjá…
Á Gunnfríðarstöðum á Bakásum í Austur-Húnavatnssýslu er vaxinn upp myndarlegur skógur með ýmsum trjátegundum, til dæmis hraðvaxta ösp sem bæði gefur flettanlegt efni til smíða og iðnvið til stóriðju. Víða á Norðurlandi vestra eru góð skógræktarskilyrði og skógrækt getur stutt vel við aðrar búgreinar á jörðum bænda. Mynd: Pétur Halldórsson.

Skógræktarstjóri ræðir skógrækt sem þátt í fjölbreyttari landbúnaði

Framtíð landbúnaðar á Norðurlandi vestra verður rædd á ráðstefnu sem haldin verður í Félagsheimilinu á Hvammstanga á morgun, föstudaginn 20. október. Meðal frummælenda er Þröstur Eysteinsson skógræktarstjóri og ræðir skógrækt sem þátt í fjölbreyttari landbúnaði.

Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra standa fyrir ráðstefnunni sem hefst kl. 13 og lýkur kl. 17. Ráðstefnustjóri verður Gísli Einarsson en Þorgerður Katrín Gunnars­dóttir landbúnaðarráðherra ávarpar ráð­stefnu­gesti. Ráðstefnan er öllum opin og fer skráning fram á netfanginu ssnv@ssnv.is.

Ráðstefna um framtíð landbúnaðar á Norðurlandi vestra föstudaginn 20. október 2017:

13.00 Setning – Stefán Vagn Stefánsson, formaður SSNV

13.10 Ávarp landbúnaðarráðherra – Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir

13.50 Fleiri stoðir – Haraldur Benediktsson, 1. þingmaður Norðvesturkjördæmis

14.10 Hvernig er hægt að lifa af yndisarði? – Sigríður Ólafsdóttir bóndi

14.30 Vörusmiðja Biopol, tækifæri til nýsköpunar – Þórhildur María Jónsdóttir verkefnastjóri

14.40 HLÉ

15.00 Skógrækt sem þáttur í fjölbreyttari landbúnaði – Þröstur Eysteinsson skógræktarstjóri

15.20 Getur ferðaþjónustan stutt við hinar dreifðu byggðir á Norðurlandi vestra? – Stefanía Hjördís Leifsdóttir bóndi

15.40 Nýting landgæða – Eggert Kjartansson raforkubóndi

16.00 Atvinna og búseta í dreifbýli – Jóhannes G. Þorsteinsson tölvuleikjahönnuður

16.15 Samantekt og umræður

17.00 Ráðstefnuslit