Markmið er einn milljarður trjáa

Dagur jarðar er á miðvikudaginn kemur, 22. apríl. Jarðarbúar eru hvattir til þess að gróðursetja á þessum degi eina fjölæra plöntu af tegund sem hentar skilyrðum á hverjum stað. Snemmbúið vorið á Íslandi gerir okkur kleift að taka þátt í þessum viðburði um allt land. Hvernig væri það?

Nú er í undirbúningi nokkuð sem gæti orðið að stærsta grasrótarviðburði í sögunni. Fólk um allan heim er hvatt til að gróðursetja tré þennan dag eða sá fræi og sömuleiðis að taka málstað trjánna og tala fyrir þeim. Hugsunin er sú að við greiðum jörðinni til baka fyrir það sem við höfum þegið af henni.

Fyrirmynd þessarar hugmyndafræði er fengin úr menningu indíána Ameríku. Þar er ævaforn trú og siður að þegar mennirnir taka eitthvað af jörðinni verði þeir að gefa henni eitthvað í staðinn. Á degi jarðar 2015 verður haldinn alþjóðlegur viðburður þar sem greitt verður upp í skuld við jörðina fyrir það sem hún hefur gefið okkur mönnunum. 

Markmiðið er að gróðursettur verði eða sáð fyrir að minnsta kosti einum milljarði trjáplantna. Fólk er beðið að setja niður eða sá fyrir plöntu sem þrífst við þau veðurskilyrði sem eru á hverjum stað. Um leið er fólk beðið að hlúa að plöntunni meðan hún er að vaxa upp líkt og við gerum við börnin okkar þegar þau eru að vaxa upp. Hugsum um trén þangað til þau geta séð um sig sjálf. 

Að viðburðinum standa samtökin Forest Nation og á vefsíðu samtakanna getur fólk skráð sig til leiks, nafnlaust eða undir nafni, og hvar það hyggist setja niður trjáplöntur eða fræ á miðvikudag. Hirðingjar jarðarinnar, Earth Guardians, hafa gert myndband í samvinnu við tónlistarmanninn A-natural þar sem sungið er um tré. Earth Guardians eru samtök ungmenna sem vilja berjast fyrir verndun jarðarinnar, vatns, lofts og loftslags, til að tryggja heilbrigða, réttláta og sjálfbæra framtíð á jörðinni.

Horfa

Þau sem standa að þessu gróðursetningarátaki hvetja alla sem vettlingi geta valdið að láta orðið berast svo sem flestir taki sig til og gróðursetji eða sái fyrir trjám á degi jarðar 22. apríl. Fólk getur sent inn myndir og myndbandsupptökur af gróðursetningunni og ef heppnin er með gæti þetta myndefni birst í því efni sem unnið verður upp úr að viðburðinum loknum og birt á vefnum.

Texti: Pétur Halldórsson