Öskjuhlíðardagurinn verður haldinn í fyrsta sinn laugardaginn 7. maí. Tilefni dagsins er undirritun samkomulags um stofnun starfshóps sem ætlað er að móta samstarf Reykjavíkurborgar, Háskólans í Reykjavík og Skógræktarfélags Íslands um útivistarsvæðið í Öskjuhlíð með það að markmiði að styrkja svæðið sem náttúruperlu, útivistar- og kennslusvæði. Starfshópnum er ætlað að móta tillögur um verkefni með eftirfarandi markmið að leiðarljósi:

  • Skógur: Að auka fjölbreytni í skógrækt og bæta umhirðu skógarsvæðisins.
  • Fræðsla: Að efla fræðslu og þekkingu almennings á náttúru og sögu Öskjuhlíðar, meðal annars í gegnum fjölbreytt skólastarf í Öskjuhlíð.
  • Rannsóknir: Að efla fjölbreyttar rannsóknir á svæðinu, þar á meðal notkun þess.
  • Útivist: Að efla lýðheilsu með því að bæta aðstöðu í Öskjuhlíð til fjölbreyttrar útivistar og hreyfingar.
  • Skipulag: Að skoða mögulegar breytingar á skipulagi svæðisins með tilliti til dvalarsvæða, stígatenginga o.s.frv.

Dagskráin hefst með því að Borgarstjórinn í Reykjavík, Jón Gnarr setur hátíðina kl. 11 og henni lýkur um kl. 16.

Taktu þátt í ratleik í Öskjuhlíðinni, farðu í siglingu í Nauthólsvík, kynnstu Öskjuhlíðinni í skemmtilegum gönguferðum með leiðsögn, hlustaðu á Ragga Bjarna og Gleðisveit lýðveldisins, lærðu allt um vorverkin í garðinum, að búa til moltu og farðu í sjósund í Nauthólsvík. Sjáðu stóra skógarsög að verki, heimsóttu börnin í Hjallaskóla, komdu í HR og hlýddu á bestu ljóðskáld þjóðarinnar í skóginum í Öskjuhlíð.