Frá Kirkjubæjarklaustri. Ljósmynd: Pétur Halldórsson
Frá Kirkjubæjarklaustri. Ljósmynd: Pétur Halldórsson

HORFT TIL FRAMTÍÐAR!

Félag skógareigenda á Suðurlandi (FsS) boðar í samstarfi við Skógræktina til opinna funda um skóg- og skjólbeltarækt dagana 4. og 5. október.

Fundirnir eru haldnir m.a. til að skerpa umræðuna um stöðu nytjaskógræktar og skjólbeltaræktar á Suðurlandi, m.a. með tilliti til bindingar á kolefni í skógum og möguleika bænda á að kolefnisjafna bú sín með skógrækt og jafnvel á sölu á umframbindingu skóga á einstaka jörðum. Einnig verður rætt um nýtt félagskerfi bænda, stöðu og framtíðarsýn nytjaskóg- og skjólbeltaræktar, fræðslumál o.fl.

Fundirnir eru öllum opnir og verða haldnir sem hér segir:

  • Mánudaginn 4. október á Götum í Mýrdal kl 17. Fundarstjóri: Hrönn Guðmundsdóttir
  • Mánudaginn 4. október á Hótel Klaustri kl 20. Fundarstjóri: Sólveig Pálsdóttir.
  • Þriðjudaginn 5. október í Goðalandi Fljótshlíð kl 17. Fundarstjóri: Sigríður J. Sigurfinnsdóttir
  • Þriðjudaginn 5. október á Hótel Selfossi kl 20. Fundarstjóri: Agnes Geirdal.

Dagskrá

1. Starf skógarbænda á Suðurlandi

  • Hlutverk FsS – Björn Bjarndal
  • Að vera skógarbóndi – Ísólfur Gylfi Pálmason
  • Að taka þátt í leshópum um skógrækt og skjólbeltarækt. Skráning hefst í þriggja ára leshóparöð.
  • Nýtt félagskerfi skógarbænda – Guðrún Birna Brynjarsdóttir
  • Kolefnisbrúin – Hlynur Gauti Sigurðsson

2. Horft til framtíðar í nytja- og skjólbeltarækt

Sérfræðingar Skógræktarinnar á Suðurlandi ræða um stöðu nýtjaskógræktar og skjólbeltaræktar á Suðurlandi, m.a. með tilliti til bindingar kolefnis í skógum og önnur verkefni Skógræktarinnar.

3. Almennar umræður

Starfið fram undan:

  • Hvert á hlutverk skógarbænda að vera í grisjun og umhirðu skóga, ásamt úrvinnslu skógarafurða
  • Hvers konar verktakavinnu vantar í skjólbelta- og skógrækt? Hver, hvar, hvernig?
  • Fræðsla fyrir skjólbelta- og skógarbændur

Fundirnir eru öllum opnir 

Nánari upplýsingar hjá Birni Bjarndal Jónssyni bjorn@bjarndal.is sími 899 9302 eða Ísólfi Gylfa Pálmasyni s. 892 7644.

Fréttatilkynning frá Félagi skógarbænda á Suðurlandi
Sett á skogur.is: Pétur Halldórsson