Í nefndaráliti meirihluta fjárlaganefndar í annarri umræðu fjárlagafrumvarpsins er lagt til að Héraðsskógar fái 8 m.kr. tímabundið framlag til gerðar gagnagrunns í skógrækt sem unnið hefur verið að sl. tvö ár í samvinnu við landshlutaverkefnin fimm og Skógrækt ríkisins. Verkið er nú hálfnað.