Vigdís Finnbogadóttir, fv. forseti Íslands, gróðursetur birkitré, eitt fyrir stúlkur, eitt fyrir dre…
Vigdís Finnbogadóttir, fv. forseti Íslands, gróðursetur birkitré, eitt fyrir stúlkur, eitt fyrir drengi og eitt fyrir framtíðina.

Málþing um loftslagskreppuna og framtíðina verður haldið í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafns Íslands föstudaginn 29. október kl. 13.30-15.30 undir yfirskriftinni: Öll á sama báti – Loftslagskreppan og aðgerðir í þágu framtíðarinnar.

Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, er heiðursgestur málþingsins sem haldið er á vegum Stofnunar dr. Sigurbjörns Einarssonar og Guðfræðistofnunar Háskóla Íslands, í samvinnu við samráðsvettvanginn Faith for Nature (https://faithfornature.org/)

Dagskrá:
Halldór Reynisson, verkefnisstjóri umhverfismála hjá Þjóðkirkjunni, setur ráðstefnuna og ræðir um Loftlagsmál, börnin og framtíðina

Erindi:

  • Halldór Þorgeirsson, fulltrúi Andlegs þjóðarráðs bahá‘ía á Íslandi: Trú á vettvangi Sameinuðu þjóðanna.
  • Halldór Björnsson, hópstjóri veðurs og loftslags hjá Veðurstofunni: Kynning á nýjustu skýrslu IPCC um loftslagsbreytingar.
  • Guðfinna Th. Aðalgeirsdóttir, prófessor við jarðvísindadeild H.Í: Nánar um IPCC-skýrsluna: Hörfun jökla og hækkun sjávarstöðu eru afleiðingar loftslagsbreytinga af mannavöldum.

    Örinnlegg:
    • Tryggvi Felixson, formaður Landverndar
    • Hjördís Jónsdóttir, stofnandi Skógræktarfélagsins Ungviðar
    • Hilmar Örn Hilmarsson, allsherjargoði
    • Evlalía Kolbrún Ágústsdóttir, fulltrúi frá Ungum umhverfissinnum
    • Axel Árnason Njarðvík í umhverfishópi þjóðkirkjunnar
    • Áróra Árnadóttir, nýdoktor við umhverfis- og byggingarverkfræðideild Háskóla Íslands
    • Gunnar Hersveinn, athafnastjóri hjá Siðmennt

    Málþingsstjóri: Arnfríður Guðmundsdóttir, prófessor við guðfræði- og trúarbragðadeild við Háskóla Íslands.

Málþinginu verður streymt og má finna það á slóðinni: www.youtube.com/watch?v=aUstYiAHmJg

Vefsíða fundarins